|
Talning
Fyrir 256 dögum
Ferming
|
03.04.2011 21:03:16 / Hafdís
gellz bara í bgn um helgina hitti pabba rétt þegar hann sótti stelpurnar í hyrnuna en þar var gummi, lilja, hulda og guðrún saga að taka á móti mér við vorum bara ehv að hanga út í bæ svo fór ég heim með lilju og gisti þar. Daginn eftir fórum við í hagkaup og hittum þar guðr+unu og huldu, við mátuðum föt og skó en fórum svo í bónus og enduðum í samkaupúrval. Þá fórum við heim til lilju og vorum þar ehv en svo fórum við hulda ég og guðrún að hitta dodda og kára (98mdlin) það var svaka fjör vorum rekin út af hyrnuni og svona en ég hulda og guðrún fórum svo um 11 heim til guðrúnar og horfðum á eldri útgáf. af alvin og íkornunum og prinsessan og durtarnir. svo töluðum við þangað til klukkan fór að ganga 4, þá sofnuðum við. Þegar við vöknuðum fórum við út en ég fór samt með pabba heim um hádegið og að sækja systur mínar. Við fórum svo til ömmu ingu og ömmu Bryndísar og svo á verkstæðið að hitta afa nonna. Eftir það fórum við heim og svo á rútuna. Við vorum komnar með rútunni í varmahlíð um 8 en þar beið móðir mín eftir okkur, við fórum beint á múla og þar ætlum við að borða kvöldmat. Þetta er helgin í stórum dráttum og ég nenni engan vegin að segja ehv meira svo ég skrifa bara meira seinna  Kv Hafdís
»
31.03.2011 21:32:05 / Hafdís
jæja nú er skvísan aftur byrjuð að blogga langt síðan síðast, það hefur svo mergt gerst við stelpurnar og mamma búum nú á Hólum í Hjaltadal en komum aðra hverja helgi í Borgarnes til pabba og Dagnýjar  ....við fórum allar í Grunnskólan á Hólum í fyrra en í ár fór ég í Varmahlíðarskóla. Þar er ég búin að eignast fullt af vinum við erum 10 í bekknum...Eva Berglind, Ragna Vigdís, Regína og Hákon sem búa öll í Varmahlíð en við hin 6 búum annað hvort í sveit eða ehv staðar annarsstaðar..ég á hólum, Siggi í Framnesi, Jóndís í Syðstu-Grund, Sverrir á Stórhól, Óli í Goðdölum og Björn Eggert á króknum. Þetta er allt mjög góðir vinir mínir. Ég er búin að vera í þessum bekk í næstum heilt skólaár (8bekkur) ég er líka búin að eignast vini úr bekknum fyrir neðan t.d. Haukur, Einar, Amalía o.fl. og auðvitað Fríða en ég þekkti hana fyrir. Svo eru líka krakkar úr bekknum fyrir ofan eins og Kristó, Gunnar og fleiri en Bettinu er ég búin að þekkja lengur. Gellan er bara komin í samband og er búin að vera í því í 5 mánuði 5.apríl  Kellingin er bara farin að eldast er orðin 14ára og á að fermast í júní svakalega er tímin fljótur að líða mér finnst eins og það hafi verið í gær sem ég varð 10 ára! Svo er tímin búin að líða svo hratt að ég er að halda upp á afmælið mitt sem var í janúar núna 8 apríl... Ég er komin í skátana enn að æfa á þverflautu eftir 5 ár og er hætt í fótboltanum, stegni samt á að byrja aftur núna bráðlega með Smáranum  Annars hef ég lítið breyst er enn sama rugludollan því miður fyrir aumingja fólkið sem þarf að umgangast mig  ææ ég vorkenni þeim ekkert að þurfa að hitta svona mikinn snilling sem ég er.nei bara grín  ég er nú samt ekki sem verst fyrst að fólkið hittir mig. En nú er ég hætt að bulla og ég lofa mikið að ég skrifi reglulega  Kv RUGLUKOLLAN YKKAR 
»
12.11.2008 20:42:57 / Hafdís
Í dag er MIÐVIKUDAGUR það er dagurinn sem ég er upptekin frá 06:30-20:00. Ég var að drepast úr pirringi í dag í skólanum svo ég fór ekki á fótboltaæfingu sem var rosalega gott því ég þurfti líka smá hvíld. Svo kl. 15:30 fórum ég og Þorgeir að bera út Skessuhornið en fyrst tókum við helminginn á hálftíma og hinn helminginn á sama tíma en fengum okkur klukkutíma pásu á milli. Hann borðaði hjá mér og það var steiktur þorskur í matinn sem var ofboðslega góður. SVo eftir matin þegar Þorgeir var farinn þá sast ég við tölvuna og skrifiði þetta. Ég satt að segja nenni ekki að skrifa meir en á morgun á pabbi afmæli svo ég skrifa kannski meira þá. Bless hress og ekkert stress
»
11.11.2008 20:55:35 / Hafdís
»
29.09.2008 19:42:09 / Hafdís
Daginn 28.mars 2008 voru 30 ár síðan hann lést. Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson fæddist þann 11. apríl 1945 í Merkinesi í Höfnum á Suðurnesjunum og ólst þar upp, yngstur í hópi fimm systkina. Á uppvaxtarárum sínum var Vilhjálmur allajafna kallaður Hólmar. Faðir hans var Vilhjálmur Hinrik Ívarsson, var þekktur harmonikuleikari og söngmaður. Tónlistarhæfileikarnir leyndu sér ekki hjá dótturinni Eldey, sem ávalt var kölluð Elly, og varð hún þjóðkunn söngkona löngu á undan Vilhjálmi. Tónlistarhæfileikar Vilhjálms komu þó fljótlega í ljós en sjálfur hafði hann ekki mikla trú á þeim hæfileikum né heldur að tónlistarbrautin ætti fyrir honum að liggja. Eftir að hafa lokið gagnfræðaprófi frá Keflavík og síðan Landsprófi frá Laugavatni með viðkomu á Ísafirði einn vetur, hélt Vilhjálmur til náms í Menntaskólanum á Akureyri árið 1961. Þar spurðist út að bróðir Ellyar, sem þá var orðin landsfræg, væri við nám í skólanum og því töldu meðlimirnir í hljómsveitinni Busabandinu að hann væri góður kostur sem söngvari sveitarinnar. Eftir fortölur lét Vilhjálmur til leiðast og hóf að syngja með þeim. Þar varð hann einnig að læra á kontrabassa sem hann gerði með hraði. Um tíma var Þorvaldur Halldórsson einnig með sömu hljómsveit en hætti þegar hann fékk stöðu í Hljómsveit Ingimars Eydal, sem þá var frægust sveita norðan heiða. Vilhjálmur fylgdi á hæla Þorvaldar og hóf að syngja með Ingimari árið 1965, um líkt leyti og hann lauk námi við Menntaskólann. Í september 1965 gerði Ingimar Eydal samning við Svavar Gests um útgáfu á tveim hljómplötum með sveitinni og var haldið suður til Reykjavíkur þar sem hljóðrituð voru ein átta lög til útgáfu, auk þess sem tækifærið var notað og spilað í Glaumbæ við góðar undirtektir. Var þetta í fyrsta sinn sem Hljómsveit Ingimars Eydal lék í höfuðborginni. Fyrri hljómplatan kom út í október 1965 og hefur að geyma fyrstu lögin sem þrykkt voru á plast með söng Vilhjálms. Þegar seinni platan kom út í febrúar 1966 var Vilhjálmur hættur með Hljómsveit Ingimars Eydal. Hann hafði afráðið að halda í Háskóla Íslands til frekara náms. Nokkur þeirra laga sem Vilhjálmur söng inn á plöturnar í Reykjavíkurferðinni með Ingimar Eydal eignuðust sess í hjörtum landsmanna um leið og þau komu út. Má nefna lögin Litla sæta ljúfan góða, Raunasaga og Vor í Vaglaskógi, öll sungin af Vilhjálmi Vilhjálmssyni, auk laga eins og Á sjó og Hún er svo sæt, sem Þorvaldur Halldórsson söng. Vilhjálmur hafði munstrað sig í Lagadeild Háskólans en skipti þó fljótlega yfir í læknisfræði. Hann hafði eignast son 1963 með fyrstu konu sinni og vegna þess og ekki síður vegna námsins varð hann að afla tekna. Þegar Magnús Ingimarsson fyrrum meðlimur hljómsveitar Svavars Gests stofnaði hljómsveit undir eigin nafni í ársbyrjun 1964, fékk hann Vilhjálmi fasta stöðu og nokkuð öruggar tekjur þar sem Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar var fastráðin á veitingahúsinu Röðli og lék þar öll kvöld vikunnar, auk þess að koma nokkuð reglulega fram í skemmtiþáttum Svavars Gests í Ríkisútvarpinu. Hljómsveitin lék mest kántrýskotna erlenda slagara með íslenskum textum en þessi tónlist var Vilhjálmi mjög að skapi á þessum tíma og má segja að Vilhjálmur sé allt að því frumkvöðull í flutningi slíkrar tónlistar hér á landi. Nokkur þessara laga komu út á 45 snúninga plötum, en eftir að Vilhjálmur lést kom breiðskífan Fundnar hljóðritanir, sem hefur að geyma hluta þess efnis sem hljómsveitin lék í áðurnefndum skemmtiþáttum Svavars Gests. Eftir að sjónvarpið hóf göngu sína 1966 kom Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar þar fram í nokkur skipti ásamt aðalsöngvara sínum, Vilhjálmi Vilhjálmssyni. Tónlistargyðjan krafðist sinna fórna af Vilhjálmi eins og svo mörgum fyrr og síðar. Hann hætti læknanámi eftir tveggja ára nám, hjónabandið rann sömuleiðis út í sandinn en tónlistin varð aðalatvinna Vilhjálms árið 1967. Þó svo Vilhjálmur væri af bítlakynslóðinni í aldurslegu tilliti, fæddur um líkt leyti og t.d. Gunnar Þórðarson og Rúnar Júlíusson sem leitt höfðu íslenska bítlatónlist undir merkjum Hljóma, var hann á öðru tónlistarróli en þeir. Vilhjálmur virtist falla eldri áheyrendum vel í geð og reyndar styrkti hann þá stöðu sína enn frekar þegar SG hljómplötur gaf út plötuna Systkinin Vilhjálmur og Elly syngja saman, árið 1969. Þetta gerðist á sama tíma og frumlegheitin hertóku poppið með stofnun Trúbrots, og víkkaði enn tónlistarbilið milli Vilhjálms og samtímamanna hans. Þessi plata þeirra systkina var fyrst fjögurra platna sem þau unnu saman og út komu á næstu þremur árum. Önnur innihélt lög Sigfúsar Halldórssonar, sú þriðja lög Freymóðs Jóhannssonar, sem kallaði sig 12. september, og loks jólaplata. Allar náðu þessar plötur miklum vinsældum. Um mitt ár 1970 fluttist Vilhjámur búferlum til Lúxemborgar eftir að hafa lokið flugnámi. Þar dvaldist Vilhjálmur næstu árin en skrapp þó heim í frí og var þá tækifærið notað og sungið inn á plötur. Þannig var nafni hans haldið á lofti með tveimur tólf laga LP plötum, Glugginn hennar Kötu (1972) og Fundnar hljóðritanir (1973) ásamt tveimur smáskífum. Árið 1974 urðu enn ein kaflaskil í lífi Vilhjálms er hann kynntist þriðju konu sinn og fluttist heim til Íslands á ný og settist að í Hafnarfirði. Í febrúar 1975 opnaði fyrsta alvöru upptökuhljóðver landsins. Meðal þeirra fyrstu sem þar tóku upp var hljómsveitin Mannakorn, sem var að gefa út sína fyrstu plötu. Þeir hóuðu í Vilhjálm sem söng inn á plötu þeirra. Sú tækni sem fjölrásahljóðverin bjuggu yfir, það er að geta hljóðritað söng eða undirleik aftur og aftur, heillaði Vilhjálm. Hann ákvað því að gera stóra plötu og fékk valda samtíðarmenn til að semja lög við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk. Úr varð platan Með sínu nefi, sem út kom á merki Fálkans árið1976. Með þeirri plötu hófst samstarf Vilhjálms og Magnúsar Kjartanssonar, en sá síðarnefndi var meðlimur hljómsveitarinnar Júdas sem síðar stofnaði samnefnt útgáfufyrirtæki. Vilhjálmur varð síðar meðeigandi þess ásamt Magnúsi og Jóni Ólafssyni, en það fyrirtæki þróaðist í Skífuna löngu seinna en það er önnur saga. Næsta verk Vilhjálms var platan Hana nú, sem kom út sama ár og enn steig Vilhjálmur skref fram á við því nú voru textarnir allir hans eigin smíð. En platan var vart komin í búðarhillurnar þegar Vilhjálmur hóf að huga að næsta verki. Hann ætlaði að syngja nokkur gömlu laganna sinna inn á nýjan leik og nýta sér þá tækni sem hann hafði heillast af og fjölrása hljóðverið í Hafnarfirði bauð upp á. En honum entist ekki aldur til að hrinda þessum fyrirætlunum í framkvæmd, því meðan verkið var á byrjunarstigi lést Vilhjálmur í sviplegu umferðarslysi í Lúxemborg þann 28. mars 1978, þar sem hann var við störf á vegum Arnarflugs. Segja má að Vilhjálmur hafi blómstrað allan sinn feril, en eftir fráfall hans hafa lögin tekið við því hlutverki. Vilhjálms er og mun verða minnst sem eins ástsælasta söngvara dægurlagasögu Íslands. Við þökkum fyrir að hann hafi skilið eftir sig eins mikið af lögum og hann gerði.
Hafdís
»
04.06.2008 15:55:58 / Hafdís
Í dag voru skólaslit og ég fór í keilu, við lentum í 3. sæti af 5 og það var nokkuð gott því við vorum flest að gera þetta í fyrsta sinn. En annars var bara gaman, fengum okkur pylsu og svala. Svo í endann fórum við i stórfiskaleik, allir í skólanum tóku þátt. Svo enduðu skólaslitin á því að hver bekkur raðaði sér í stafrófsröð fyrir framan kennarann sinn og fengu einkunirnar sínar. Ritarinn ruglaðist svo að í staðinn fyrir 5.KK fengu sumir í okkar bekk að hlaupa yfir einn bekk, upp í 6.KK. Svo fóru flestir heim eða eins og ég í vinnuna hans pabba að sýna honum 3 tíur, 2 níu,fimm, 7 níur og 2 áttur. Þetta voru einkunirnar mínar 10 í stærðfræði, ensku og landafræði. Ég og Elínborg fórum til pabba og á leiðinni tókum við eftir því að Elínborg hafði verið veik 16 sinnum en ég 9 sinnum og hún hafði fengið einu sinni leyfi en ég 5 sinnum. Svo sýndum við pabba einkunirnar og hann keyrði okkur heim. Núna eftir þennann dag klukkan 10 min í fjögur sit ég hér við tölvuna þarf að fara að hætta og þá hundleiðist mér því að þá hef ég ekkert að gera. KV. Hafdís Lára Bless hress og ekkert stress    :þ
»
20.03.2008 12:50:01 / Hafdís
Halló halló
Jæja nú er ég komin í páskafrí og er það fríið sem maður á að vera heima hjá sér og slappa af í. Mamma fór með stelpurnar norður á laugardaginn (15.mars) og við fórum að sækja þær í gær, ekki mikil afslöppun það eða hvað?? Við lögðum af stað rúmlega 9 og þegar við komum á krókin byrjuðum við á því að heimsækja langalangömmu mína hana ömmu Birnu.Það var voða notalegt, en hún er bara svolítið veik núna þannig að við stoppuðum bara stutt. Svo fórum við og fundum Guðrúnu Hönnu og fórum með henni í nýju hestabúðina á króknum og þar græddi ég úlpu. Því næst var lá leiðin í Hjaltadalinn til afa og ömmu. Svo þegar við vorum búnar að fara í bað, fótabað og borða helling og kyssa og knúsa afa, ömmu og Guðrúnu Hönnu var lagt af stað heim, einhvern tíman um níu leytið um kvöldið, mamma þurfti að koma við hjá Láru og Unnari með einhverjar buxur. Löggan stoppaði okkur þegar við vorum komnar aðeins upp á Þverárfjallið, bara til að athuga hvort mamma væri ekki örugglega með ökuskírteinið sitt, nei hún var ekki að keyra of hratt . Tókum bensín á Blöndósi, ætluðum að fara á klósettið þar en sjoppan þar lokar kl 22, þannig að við fengum afa til að ahuga hvenær lokaði í Víðihlíð og við náðum þangað rétt fyrir 23  og mamma splæsti á smá nammi Þannig að við komum seint heim og vorum allar rosa þreyttar. þangað til næst kv Hafdís Lára
»
22.01.2008 20:12:36 / Hafdís
»
21.01.2008 19:51:56 / Hafdís
»
19.01.2008 14:26:52 / Hafdís
»
18.01.2008 19:38:14 / Hafdís
»
04.01.2008 14:15:07 / Hafdís
síðan mín átti afmæli í gær en þá var svo mikið að gera hjá mér svo ég gat ekki skrifað svo birjaði skólinn líka í gær en ég bara varð veik svo ég var heima í dag og í gær KV. Hafdís Bless hress og ekkert stress
»
28.12.2007 20:27:46 / Hafdís
Já ég gleymdi næstum síðan á þriggja ára afmæli bráðum 3. janúar Kv. Hafdís Lára Bless hress og ekkert stress
»
28.12.2007 20:18:53 / Hafdís
Það er langt síðan ég skrifaði síðast. Bráðum er árið búið og þá kemur annað til að taka við. Jólin eru búin. Ég er búin að bíða eftir að fá þverflautu í tvö ár og loksins fékk ég hana og það í jólagjöf. Ég fékk hana frá mömmu, pabba, Elínborgu, Ásdísi, ömmu og afa á Múla, ömmu og afa á Kveldúlfsgötu, ömmu Ingu, ömmu Gunnu, ömmu og afa á Gunnlaugsgötu, Bjössa frænda og fjölsk, Guðrúnu frænku, Kristínu frænku og fjölsk og Kristjóni frænda.svo fékk ég líka margt annað. svo á ég afmæli 21. janúar svo það fer að stittast í það. Kv. Hafdís Lára Bless hress og ekkert stress
»
22.04.2007 17:01:11 / Hafdís
Ég er ekki búin
að skrifa lengi lengi og mamma var að minna mig á
það
Ég er á reiðnámskeiði á
miðvikudögum en næsti tímin er síðasti tíminn. Ég er líka búin
að vera svolítið mikið í sims núna síðustu
daga.
Svo er að koma sumarfrí í
skólanum þá skrifa ég kannski meira.
Þangað til næst bless hress
og ekkert stress
»
Síður: 1 2 3
|
Heimsóknir
Í dag: 3 Alls: 7628
|